Hársnyrting
Markmið okkar er að veita góða og faglega þjónustu. Við bjóðum upp á alla alhliða hársnyrtiþjónustu: dömu- og herraklippingar, litanir og strípur svo eitthvað sé nefnt. Einnig tökum við að okkur brúðargreiðslur sem og aðrar viðhafnargreiðslur. Og að sjálfsögðu gefum við góð ráð um umhirðu hársins.
Unnið er með er með vörur og liti frá Indola, Schwarzkopf og Teotema. Sjámpó, hárnæringar og djúpnæringar eru frá Indola og mótunarvörur okkar, s.s eins og vax, leir, hárlakk, froður og fl. eru fá Schwarzkopf og heitir sú lína frá þeim Osis.
