Gallerí útlit býður nú upp á hinar geysivinsælu NYX förðunarvörur. Flestum dettur heimsborgin New York í hug þegar þeir sjá lógó snyrtivörufyrirtækisins NYX. Höfuðstöðvar NYX eru nú þrátt fyrir það staðsettar í hjarta hinnar sólríku Los Angeles. Nafnið NYX er eftir samnefndri grískri gyðju sem réði yfir næturlífinu rétt eins og hinar fjölmörgu nútíma gyðjur sem nota snyrtivörurnar frá NYX!

Fyrirtækið var stofnað árið 1999 af ungri konu, Toni Ko, sem hefur tengst snyrtivörumarkaðinum á einn eða annan hátt frá því hún var táningur. Hana langaði að þróa snyrtivörulínu sem byði upp á gæðavörur en á viðráðanlegu verði. NYX snyrtivörurnar standa einmitt fyrir það – hágæða förðunarlína á lágmarksverði.

Fyrirtækið NYX hefur vaxið hvað hraðast af þeim snyrtivörufyrirtækjum sem eru á bandaríska markaðinum í dag. Nýtískulegar pakkningarnar og ótrúleg litaflóran hefur svo sannarlega náð augum tískudrottninga um allan heim og margar vörur í línunni eru komnar á “must have” listann hjá aðdáendum merkisins. Í þessu merki mætast gæði og gott verð – sjón er sögu ríkari.

Verið velkomin, Gallerí útlit




 

Facebook

Fylgstu með okkur á facebook. Þar getur þú skoðað nýjustu fréttir og myndagalleríið okkar. Fara á Facebook

Námskeið

Við bjóðum upp á námskeið af ýmsum toga fyrir alla sem vilja lyfta sér upp og græja sig að utan sem innan.

Tilboð mánaðarins

Mánaðarlega erum við með hagstæð tilboð sem vert er að fylgjast með.


Gallerí útlit | Bæjarhrauni 6, 220 Hafnarfirði | Sími: 555-1614 galleriutlit@galleriutlit.is

Skráðu þig á póstlista

Nafn


Netfang