Viltu læra að farða þig sjálf?
Námskeið í förðun sem er þá frábær kostur fyrir þig sem vilt ná betri tökum á að farða þig sjálf, hvort sem um létta förðun fyrir daginn eða meiri förðun fyrir önnur tækifæri.
Námskeiðið er tilvalið fyrir vinkonur, saumaklúbba, vinnustaði eða einstaklinga (blandaðir hópar) að hittast eina kvöldstund (3 klukkustundir) eða þann tíma sem hentar og fá faglega ráðgjöf hjá reyndum förðunar- og snyrtifræðimeistara.
Námskeiðin eru bæði fyrir lokaða hópa og opna hópa þar sem konur geta komið og lært að farða sjálfa sig með sínum eigin förðunarvörum. Hagstæður fjöldi eru 4-6 konur í hóp svo að hver og ein fái persónulega og árangursríka kennslu. Einnig er boðið upp á einkanámskeið.
